17.2.2008 | 20:38
Laugardagur í Mávahlíð
Eftir að hafa tekið til, ryksugað og þurrkað af hefst litla fjölskyldan handa við að útbúa indverskan pottrétt milli þess sem sá stutti er huggaður og honum snýtt. Von er á gestum að vestan og von til þess að þeir komi klyfjaðir rækjum og allskonar fíneríis gúmmilaði. Eftir að hafa snætt kvölverð og yfir honum rætt landsins gagn og nauðsynjar ásamt málegnum líðandi stundar, eru tveir sendir vestur til síns heima og sá þriðji rífur allar bækur úr bókahillum. á meðan gestir og húsfrúin raða aftur bókum upp í hillur, eftir mjög ströngu kerfi, situr húsbóndinn, sötrar rauðvín og les í bók við kertaljós og ljúfa tóna frá Lou Reed og Sigurrós.
Þannig var það nú í baðstofunni í Mávahlíðinni
Athugasemdir
hverni getur þú sem karlmaður gert þrennt í einu? lesið, hlustað og drukkið
Ólafur Sveinsson, 17.2.2008 kl. 22:08
Ég get gert miklu meira en 3 hluti í einu, sérstaklega ef ég fæ rauðvínstár með þeim
Ólafur Örn Ólafsson, 18.2.2008 kl. 15:01
Dásamleg baðstofustemning, takk fyrir oss.
Rósa (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 21:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.