20.1.2008 | 13:08
Pestarbæli
Það er búið að vera frekar súrt ástandið í Mávahlíðinni um helgina. Við áttum öll helgarfrí og ætluðum að notfæra okkur það til að gera eitthvað skemmtilegt saman, fjjölskyldan. Vera úti í snjónum eða eitthvað sniðugt. Okkur hefur ekki orðið kápan úr því klæðinu því hér eru allir búinir að liggja í gubbupest og magapínu alla helgina. Fyrst Kolbeinn á svo Inga og svo ég sjálfur í dag. Frekar ógeðfellt...
Ekkert stuð semsagt, en við hljótum að jafna okkur fljótlega....
Athugasemdir
Maður er mikið veikur ef maður er veikur í fríi!!!
Ólafur Sveinsson, 20.1.2008 kl. 13:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.