18.3.2008 | 10:52
Pestabælið í Mávahlíð
Það virðist ekkert lát ætla að vera á lasleika og veikindum ljósvellinga. Kolbeinn er búinn að fara sínu verst út úr þessu en hann er meira og minna búinn að vera lesinn í 6 vikur. Með nokkra daga í lagi inn á milli. Við foreldrarnir eru líka búin að fá okkar skammt og hingað til hefur Inga komið verr út úr þessu en ég. En nú toppa ég þennan mikla flensufaraldur með því að fá strepptókokkasýkingu í hálsinn. Ég vona bara að það verði til þess að binda enda á, slá botninn í, ljúka þessum leiðinda veikindum það eru allir á heimilinu orðnir frekar pirraðir á hverjum öðrum Kolbeinn að rifna úr frekju því meðan hann er lasinn greyið, er ýmislegt látið eftir honum en svo skilur hann ekkert í því þegar honum eru bannaðir sömu hlutir í dag. Hann bregst við því með því að öskra og grenja og kasta sér í gólfið.
Nú þarf þessu að fara að linna svo við getum haldið áfram að vera glöð og hamingjusöm fjölskylda...
Til gamans er hér að lokum mynd af strepptókokki:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.3.2008 | 23:02
Ferðalag
Við fórum til Tenerife í seinustu viku og vorum í viku, fínn staður til að vera á. Sérstaklega ef maður hefur vit á að fara aðeins út fyrir strandbæina. Það er tiltölulega stutt að fara til að finna bæi með lífi venjulegs fólks og það tekur rúman klukkutíma að keyra næstum alla leið upp á hæsta fjall spánar. Mæli með Tenerife.
Það er komið nýtt myndaalbúm merkt með myndum þaðan. hér er uppáhaldsmyndin mín:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)