F&F

Í dag byrjar food and fun...

Laugardagur í Mávahlíð

Eftir að hafa tekið til, ryksugað og þurrkað af hefst litla fjölskyldan handa við að útbúa indverskan pottrétt milli þess sem sá stutti er huggaður og honum snýtt. Von er á gestum að vestan og von til þess að þeir komi klyfjaðir rækjum og allskonar fíneríis gúmmilaði. Eftir að hafa snætt kvölverð og yfir honum rætt landsins gagn og nauðsynjar ásamt málegnum líðandi stundar, eru tveir sendir vestur til síns heima og sá þriðji rífur allar bækur úr bókahillum. á meðan gestir og húsfrúin raða aftur bókum upp í hillur, eftir mjög ströngu kerfi, situr húsbóndinn, sötrar rauðvín og les í bók við kertaljós og ljúfa tóna frá Lou Reed og Sigurrós.

Þannig var það nú í baðstofunni í Mávahlíðinni


Vor?

Ég held svei mér þá að það sé að koma vor. Það er orðið bjart langt fram á kvöld og svo rignir stöðugt.

 Það hlýtur að fara að rjátlast af manni skammdegisþunglyndið. ..

 


þetta er fyndið

Ég er sammála Dr. Gunna að þetta myndband sé ekkert spes, en bæði lag og texti er til fyrirmyndar

 


Öskudagur

Á öskudag var náttfataball á leikskólanum hjá Kolbeini Skúla. Hér eru nokkrar myndir af því? 

 

öskudagur 001

öskudagur 002

öskudagur 003

öskudagur 004


Óleðli

Ég held að ef ég yrði uppvís af því að ljúga hvað eftir annað mér til framdráttar í vinnuni, yrði ég örugglega rekinn eða óskað eftir því að ég segði upp. Mér myndi finnast það eðlileg krafa.
Skrítið að öllum skuli ekki finnast þetta jafn eðlilegt.

Nohh!

Það er komin auglýsing á síðuna mína! Ætli ég fái borgað fyrir það?

Betri á dönsku

Þó mér finnnist rjómabollur góðar þá finnst mér bolludagur nú alltaf skynsamlegri á dönsku.

Bagdad café

Núna er á dagskrá á RUV tímamótamyndin Bagdad Café sem ég og þeir sem voru í kringum mig á þeim tíma orfðum á aftur og aftur. framúrskarandi falleg mynd. dagskrárstjri sjónvarpsins hefur hins vegar tekið þá vafasömu ákvörðun að kaupa og sýna myndina döbbaða á þýsku...!

Hverskonar eiginlega hálfvitaskapur er það? Myndin gerist á bandarískum "diner" þar sem allar persónur eru amerískar nema ein.

Þetta eru verulega mikil vonbrigði!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband